Mijia Capsule Coffee Machine hylkjakaffivél

Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.

Frí heimsending um allt land

Mijia Capsule Coffee Machine hylkjakaffivél

24.990 kr.

Mijia hylkjakaffivélin er nett og stílhrein kaffivél sem gerir þér kleift að njóta ljúffengs kaffis fljótt og auðveldlega. Hún er hönnuð til að vera einföld í notkun og passar vel inn í hvaða eldhús sem er. Vélin er einungis um 25 sekúndur að hitna svo að kaffið getur verið klárt á augabragði. Með vélinni fylgir hylkjageymsla sem hægt er að segla annaðhvort á vélina eða önnur yfirborð eins og t.d ísskáp, geymslan heldur allt að 20 hylkjum.

– 19 Bar ULKA® dæla
– 25 sekúndna upphitun
– 650 ml vatnstankur
– Tvær bollastærðir
– Lágur hávaði, aðeins 55 dB(A)
– Sjálfvirk slökkvun eftir 10 mínútur
– Stillanlegur bollastandur
– Samhæft við Nespresso Original hylki
– Segulhylkjabakki fyrir allt að 20 hylki

Á lager

Vörunúmer: 77866
Strikamerki: 778666932554409067

Upplýsingar

19 Bar ULKA® dæla

Kaffivélin er búin öflugri 19 Bar ULKA® dælu sem stöðugan þrýsting fyrir fullkominn kaffiútdrátt. Það skilar bragðmiklu kaffi með þykkri froðu, svipað og á kaffihúsi.

25 sekúndna upphitun

Tækið hitar sig upp á aðeins 25 sekúndum, sem þýðir að þú þarft ekki að bíða lengi eftir kaffinu þínu á morgnana. Þú getur einfaldlega kveikt á vélinni, sett hylki í og kaffið verður tilbúið á skammri stundu.

650 ml vatnstankur

650 ml vatnstankur sem auðveldar þér að fylla á vatnið. Einnig er auðvelt að þrífa tankinn.

Tvær bollastærðir

Vélin býður upp á 40ml og 110ml bollastærðir en þú getur vistað þína eigin stærð.

Lágur hávaði, aðeins 55 dB(A)
Sjálfvirk slökkvun eftir 10 mínútur
Stillanlegur bollastandur
Samhæft við Nespresso Original hylki
Segulhylkjabakki fyrir allt að 20 hylki

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Mijia hylkjakaffivél
  • Vatnstankur
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi Mijia hylkjakaffivél
  • Vatnstankur
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur