Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél

14.990 kr.

  • 2.5K 2560x1440px upptaka, 4MP
  • Allt að 256GB minniskort í stjórnstöð eða skýjaþjónusta geymir upptökur
  • Hreyfiskynjari, PIR human detection, hljóðnemi og hátalari
  • Hægt að hreyfa upp/niður og hægri/vinstri eða láta innbyggða gervigrein fylgja eftir hreyfingu
  • IP66 vottun, virkar í -30° – 60°
  • Innbyggður ljóskastari og IR LED ljós sýna fulllitaða myndbandsupptöku allann sólarhringinn
  • Innbyggð sírena getur farið í gang við hreyfingu á ákveðnum tímum
  • Virkar á Wi-Fi eða með netsnúru
  • 3m löng snúra fylgir

Á lager

Vörunúmer: 54217

Xiaomi CW300 útimyndavél með ljóstkastara og nætursjón

CW300 er snyrtileg, fyrirferðalítil og örugg útmyndavél með 2.5K upptöku, nætursjón, innbyggðan ljóskastara, sírenu og gervigreind til að veita þér aukið öryggi í íslenskri veðráttu.

Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin
Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin

Sér minnstu smáatriði

CW300 er með 2.5K upptöku og f/1.6 ljósopi sem skilar sér í skýrri 2560×1440 myndbandsupptöku. Upplausnin sýnir mikil smáatriði og skýrleika þegar myndin er dregin inn.

Tilbúin fyrir íslenskt veðurfar

CW300 er með IP66 vottun og er því vel varin fyrir vatni og ryki.

Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin
Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin

Sírena og ljóskastari fara í gang við hreyfingu

Þegar vélin nemur hreyfingu á ákveðnum tímum er hægt að láta innbyggða sírenu og ljóskastarann kveikja á sér til að hræða í burtu óboðna gesti. Myndavélin sendir einnig tilkynningar í Xiaomi Home appinu þegar hún verður vör við hreyfingar. 

*Til að fá tilkynningar og láta þjófavörnina kveikja á sér þarf að kveikja á þeirri stillingu í Xioami Home appinu

Full litamynd við lægri birtuskilyrði

Vélin er með infrarauð ljós sem að auðvelda henni í samstarfi við ljóskastarann að halda upptökunni alltaf í fullum lit.

Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin

Nemur hreyfingar og möguleiki á tvíhliða samtali

CW300 öryggismyndavélin er með innbyggða gervigreind sem nemur hreyfingar, við hreyfingu er hægt að láta myndavélina senda tilkynningu í gegnum Xiaomi Home appið eða láta gervigreindina fylgja hreyfingu. Í gegnum Xiaomi Home appið getur notandi skoðað rauntímaupptökur og jafnvel hafið samtal sem berst í gegnum myndavélina þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara.

Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin

Hægri, vinstri, upp og niður

Í gegnum appið er hægt að skoða stórt svæði í allar áttir og hæðir, en hægt er að stýra vélinni til beggja hliða og upp og niður.

Xiaomi Outdoor Camera CW300 útimyndavél öryggismyndavél með IP66 veðurvarin

Auðvelt í uppsetningu

Sækja Xiaomi Home appið í snjallsíma

Stinga myndavélinni í rafmagn

Skanna QR kóða á myndavélinni