23.990 kr. Original price was: 23.990 kr..20.392 kr.Current price is: 20.392 kr..
Xiaomi Self-Install Smart Lock snjalllás er festur innan á hurðina yfir sílinderinn sem fyrir er, án þess að bora og opnar og læsir með símanum, með hnappi eða með lyklinum eins og áður. Hann tengist Wi-Fi og Bluetooth, styður Matter og rafhlaðan endist í allt að 6 mánuði.
Upplýsingar
Hurðin er opnuð með Bluetooth úr símanum þegar staðið er við hana eða úr Xiaomi Home appinu hvar sem er, til dæmis til að hleypa gesti eða iðnaðarmanni inn. Lykillinn virkar áfram að utan eins og áður.
Lásinn er festur innan á hurðina yfir lykilinn eða snerilinn á sílindernum sem fyrir er, með skrúfum eða tvöföldu límbandi. Ekki þarf að bora í hurðina eða skipta um lás. Lásinn passar meðal annars á evrópska, skandinavíska og svissneska sílindra og ASSA 2000.
Innan frá er nóg að ýta á hnappinn á lásnum til að opna eða læsa. Það sparar tíma þegar farið er út og ekki þarf að snúa snerli eða leita að lyklum.
Þegar hurðin lokast nemur lásinn það með hurðaskynjara og læsir eftir þann tíma sem valinn er. Án hurðaskynjara læsir hann eftir fyrir fram valinn tíma frá því að opnað var. Þá skiptir engu þótt gleymist að læsa á leiðinni út. Kveikt er á sjálfvirkri læsingu í appinu.
Lásinn tengist Xiaomi Home bæði með Wi-Fi og Bluetooth, svo í appinu sést hvort hurðin er læst og skrá yfir það hvenær var opnað og læst. Lásinn styður líka Matter og getur þá unnið með öðrum snjallheimiliskerfum og raddstýring krefst tengingar við Alexa, Google eða Apple.
Í lásnum er 2.450 mAh Li-ion rafhlaða sem endist í allt að 6 mánuði. Appið lætur vita þegar lítið er eftir. Gott er að geyma lykil á öruggum stað utandyra ef rafhlaðan skyldi tæmast.
Lásinn er 14,1 × 6 × 5,9 cm og vegur 538 g. Hann þolir -10 til 55 °C.
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar