Dreame H14 Dual skúringarvél og handryksuga

Dreame H14 Dual skúringarvél og handryksuga

139.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Dreame H14 Dual skúringarvél og handryksuga er 5-í-1 tæki sem ryksugar og blautmoppar í sömu umferð með 18.000 Pa sogkraft og breytist í þráðlausa skaftryksugu með þremur hausum. Stöðin þvær rúlluna með 60 °C heitu vatni og þurrkar hana með heitu lofti á 5 mín.

– Sogkrafturinn er 18.000 Pa
– Allt að 40 mín. við blautmoppun og 75 mín. sem ryksuga
– 880 ml tankur fyrir hreint vatn og sjálfvirk sápuskömmtun
– Rúlla sem þrífur út að brún báðum megin
– Stöðin þvær rúlluna með 60 °C heitu vatni og þurrkar hana
– Liggur alveg flöt, 180°
– Skynjar óhreinindi og stillir sogið sjálf
– Breytist í þráðlausa skaftryksugu
– Fjölflatabursti með ljósi
– Lítill rafknúinn bursti og samsettur stútur
– Þyngd 5,9 kg
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Oft keypt með

Ryksía - Dreame H14 línan

  • HEPA sía fyrir Dreame H14 vélarnar
  • Passar á H14, H14 Pro og H14 Dual
Vörunúmer: HHV25A
Strikamerki: 6976233678665

Upplýsingar

Sogkrafturinn er 18.000 Pa

Vélin tekur blaut og þurr óhreinindi í sömu umferð með 18.000 Pa sogkrafti. Rúllan er stöðugt skoluð með hreinu vatni og óhreina vatnið sogað upp, svo gólfið er ekki þvegið með skítugu vatni og nánast engir vatnsblettir sitja eftir.

Allt að 40 mín. við blautmoppun og 75 mín. sem ryksuga

Rafhlaðan er 6 × 5.000 mAh. Á sjálfvirkri stillingu endist hún í allt að 40 mín. við blautmoppun, sem nær yfir allt að 300 fermetra. Sem ryksuga gengur tækið í allt að 75 mín. á venjulegri stillingu með samsetta stútnum. Full hleðsla tekur 4 klst.

880 ml tankur fyrir hreint vatn og sjálfvirk sápuskömmtun

Tankurinn fyrir hreint vatn tekur 880 ml. Óhreini tankurinn tekur 650 ml þegar vélin er upprétt og 450 ml þegar hún liggur flöt. Vélin blandar sápuna sjálf eftir því hve óhreint gólfið er, frá 1:200 upp í 1:30, og ein 120 ml áfylling endist í allt að 30 daga.

Rúlla sem þrífur út að brún báðum megin

Rúllan nær út að köntum báðum megin, svo ekki þarf að snúa vélinni til að þrífa meðfram listum, í hornum og í kringum borðfætur. Sveigjanleg skafa með kambi vindur óhreina vatnið úr rúllunni og greiðir hár af henni, og rúllan snýst í báðar áttir til að losa flækjur.

Stöðin þvær rúlluna með 60 °C heitu vatni og þurrkar hana

Með einum hnappi þvær stöðin rúlluna með allt að 60 °C heitu vatni. Síðan er hún þurrkuð með 60 °C heitu lofti: hraðþurrkun tekur 5 mín. og hljóðlát þurrkun um 1 klst. með um 50 dB hljóði.

Liggur alveg flöt, 180°

Vélin leggst alveg flöt og heldur fullu sogi. Öll vélin kemst undir húsgögn með 14 cm bili og hausinn undir 9,8 cm. Hjól aftan á henni lætur hana renna til hliðanna þegar hún liggur og GlideWheel drifið léttir undir þegar hún er dregin aftur á bak.

Skynjar óhreinindi og stillir sogið sjálf

Vélin skynjar hve óhreint gólfið er og stillir sogið eftir því. Ljóshringur sýnir stöðuna: grænt er lítið, appelsínugult í meðallagi og rautt mikið. LED ljós framan á hausnum lýsir upp dimm svæði. Í Dreame appinu má stilla sog og vatnsmagn, setja upp áætlun og fá áminningar um síu og rúllu.

Breytist í þráðlausa skaftryksugu

Með framlengingarrörinu og ryksuguhausunum verður tækið að þráðlausri skaftryksugu með 350 W mótor og tveimur stillingum, venjulegri og Turbo. Rykhólfið er tvískipt og skilur hár frá ryki svo það stíflist síður. Veggfesting fyrir fylgihlutina fylgir.

Fjölflatabursti með ljósi

Gólfhausinn hentar bæði á teppi og hörð gólf, er með ljósi og hannaður til að hár flækist ekki í honum.

Lítill rafknúinn bursti og samsettur stútur

Litli rafknúni burstinn tekur hár, ryk og óhreinindi úr sófum, dýnum og bílsætum. Samsetti stúturinn er annars vegar mjór stútur fyrir horn og rifur og hins vegar mjúkur bursti fyrir lyklaborð, hillur og borð.

Þyngd 5,9 kg

Vélin vegur 5,9 kg og málaflið er 380 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Skúringarvél
  • Handfang
  • Hleðslustöð
  • Framlengingarrör
  • Fjölflatabursti með ljósi
  • Lítill rafknúinn bursti
  • Samsettur stútur
  • Rykhólf
  • Veggfesting fyrir fylgihluti
  • Aukarúlla
  • Aukasía
  • Hreinsibursti
  • Hreinsilögur
  • Skúringarvél
  • Handfang
  • Hleðslustöð
  • Framlengingarrör
  • Fjölflatabursti með ljósi
  • Lítill rafknúinn bursti
  • Samsettur stútur
  • Rykhólf
  • Veggfesting fyrir fylgihluti
  • Aukarúlla
  • Aukasía
  • Hreinsibursti
  • Hreinsilögur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur