Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás

Upprunalegt verð var: 35.990 kr.
Núverandi verð er: 28.792 kr.
Þú sparar 7.198 kr.

Original price was: 35.990 kr..Current price is: 28.792 kr..

Frí heimsending um allt land

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás er settur yfir lásinn sem er fyrir á hurðinni og opnast með fingrafari, kóða, NFC eða síma. Hann læsir sjálfkrafa á eftir þér, gengur fyrir rafhlöðu sem er hlaðin með USB-C og tengist snjallheimilinu með Matter yfir Thread.

– Sett upp án þess að breyta hurðinni
– Opnast með fingrafari eða kóða
– Opnast með iPhone, Apple Watch eða NFC
– Læsir sjálfkrafa þegar hurðin lokast
– Hljóðlát stilling vekur engan á nóttunni
– Tímabundnir kóðar fyrir gesti
– Gamli lykillinn virkar áfram
– Tengist snjallheimili með Matter
– Rafhlaðan endist í allt að 6 mánuði
– Talnaborðið þolir regn og frost
– Lás 15,3 cm og talnaborð 14,6 cm á hæð

Oft keypt með

Aqara NFC lykill fyrir U200 lás

  • Auka NFC kort fyrir U200 lásinn
  • Notað til að aflæsa lásnum
  • Ath. virkar ekki fyrir U200 Lite

Upplýsingar

Sett upp án þess að breyta hurðinni

Lásinn fer að innanverðu yfir lásinn sem er fyrir á hurðinni og talnaborðið er fest að utan. Hvorki þarf að skipta um lás né breyta hurðinni. Hann passar á Euro-sílindra og valda skandinavíska sílindra sem opnast með lykli að utan þótt lykill sé í að innan.

Opnast með fingrafari eða kóða

Á talnaborðinu að utan er fingrafaralesari, svo nóg er að leggja fingur á hann og hurðin opnast. Einnig má slá inn kóða. Börnin komast því inn án þess að bera lykil.

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás
Opnast með iPhone, Apple Watch eða NFC

Með Apple Home Key er nóg að bera iPhone eða Apple Watch að talnaborðinu. Til þess þarf stjórnstöð frá Apple á heimilinu, til dæmis HomePod eða Apple TV. NFC-flaga fylgir líka með og opnar á sama hátt.

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás
Læsir sjálfkrafa þegar hurðin lokast

Innbyggður skynjari nemur þegar hurðin lokast og lásinn læsir þá sjálfur. Ef hurðin stendur opin minnir lásinn á það. Enginn þarf lengur að snúa við til að athuga hvort læst sé.

Hljóðlát stilling vekur engan á nóttunni

Í hljóðlátri stillingu snýst mótorinn hægt og lásinn opnar og læsir með lágu suði. Hún er valin beint á talnaborðinu þegar komið er seint heim eða farið snemma út.

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás
Tímabundnir kóðar fyrir gesti

Í Aqara Home appinu eru búnir til kóðar sem gilda einu sinni eða yfir ákveðið tímabil. Það hentar fyrir gesti, iðnaðarmenn eða útleigu og enginn þarf að sækja lykil.

Aqara Smart Lock U200+ Kit snjalllás
Gamli lykillinn virkar áfram

Lásinn á hurðinni er óbreyttur, svo venjulegi lykillinn opnar hana áfram að utan. Hann er til taks fyrir þá sem vilja og ef rafhlaðan tæmist.

Tengist snjallheimili með Matter

Lásinn styður Matter yfir Thread og vinnur með Aqara Home, Apple Home, Google Home, Amazon Alexa og Samsung SmartThings. Með Matter-stjórnstöð með Thread, til dæmis Aqara Hub M3, er lásnum stýrt úr símanum hvar sem er og hann getur verið hluti af sjálfvirkum senum. Innan Bluetooth-færis nægir síminn einn.

Rafhlaðan endist í allt að 6 mánuði

Lásinn gengur fyrir rafhlöðu sem er hlaðin aftur og aftur og endist í allt að sex mánuði miðað við átta opnanir á dag. Hægt er að hlaða hana á hurðinni úr hleðslubanka í pokanum sem fylgir, svo lásinn virkar á meðan. Talnaborðið gengur fyrir fjórum AAA rafhlöðum eða fastri 12–24 V tengingu.

Talnaborðið þolir regn og frost

Talnaborðið er með IPX5 vatnsvörn og þolir því regn og slyddu. Lásinn vinnur í hita frá −15 °C upp í 66 °C.

Lás 15,3 cm og talnaborð 14,6 cm á hæð

Lásinn að innan er 6,2 × 6,1 × 15,3 cm og talnaborðið að utan 4,3 × 3,3 × 14,6 cm.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Snjalllás U200 (lás og talnaborð)
  • Rafhlaða sem er hlaðin með USB-C
  • Millistykki fyrir AA rafhlöður
  • Hlíf til skiptanna
  • NFC-flaga
  • Millistykki fyrir sílindra
  • Sexkantur
  • USB-C snúra
  • 4 AAA rafhlöður
  • Límband
  • Púðar
  • Skrúfur
  • Poki fyrir hleðslubanka
  • Leiðarvísir
  • Snjalllás U200 (lás og talnaborð)
  • Rafhlaða sem er hlaðin með USB-C
  • Millistykki fyrir AA rafhlöður
  • Hlíf til skiptanna
  • NFC-flaga
  • Millistykki fyrir sílindra
  • Sexkantur
  • USB-C snúra
  • 4 AAA rafhlöður
  • Límband
  • Púðar
  • Skrúfur
  • Poki fyrir hleðslubanka
  • Leiðarvísir

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Aqara U200 snjalllás

U200 snjalllásinn frá Aqara er bráðsnjall lás sem getur læst og aflæst hurðum. U200 er festur yfir lásinn sem er nú þegar á hurðinni þinni og er því einstaklega auðveldur í uppsetningu. Lásnum er svo aflæst með hinum ýmsu aðferðum, t.d með talnaborði, síma, raddstýringu eða NFC korti*. Lásinn gengur fyrir stórri rafhlöðu en einnig er hægt að beintengja talnaborðið við rafmagn. 

*Apple Watch og Apple símar ásamt Aqara NFC kortum eru einu tækin sem styðja við NFC aflæsingu eins og er, Android tæki eru ekki með stuðning. Apple 2-in-1 Matter Controller er nauðsynlegt til að þessi fítus virki.

Aqara u200 snjalllás á hurðir
Aqara u200 snjalllás á hurðir

Sjálfvirk og hljóðlát læsing

U200 lásinn getur læst hurðinni sjálfkrafa þegar þú lokar á eftir þér. Einnig er hægt að láta tilkynningar sendast í Aqara Home appið ef hurðin er ólæst í lengri tíma. Hægt er að stilla mótorinn á hljóðláta stillingu til að trufla ekki værann nætursvefn annarra á heimilinu. 

Margvíslegar opnunaraðferðir

U200 býður uppá nokkrar leiðir til að aflæsa hurðinni en meðal annars er hægt að opna með appinu eða lykilorði á talnalásnum. Hægt er að búa til tímabundin lykilorð sem duga annaðhvort í eitt skipti eða yfir ákveðið tímabil, sem hentar einstaklega vel t.d við Airbnb leigu eða þegar þú vilt hleypa vini inn rétt áður en þú mætir á svæðið. Ef rafhlaðan tæmist er hægt að nota venjulegan lykil þangað til lásnum er komið í hleðslu.

Aqara u200 snjalllás á hurðir

Uppsetning

Uppsetningin er einstaklega þægileg þar sem lásinn smellur yfir núverandi hurðarlás. Hér fyrir neðan er myndband og leiðarvísir fyrir uppsetningu. Mikilvægt er að athuga hvort að hurðarlásinn sem ætlað er að setja snjalllásinn yfir passi ekki pottþétt.

Aqara u200 snjalllás á hurðir
Aqara u200 snjalllás á hurðir

Tengdar vörur