Dreame X60 Ultra ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

Dreame X60 Ultra ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

189.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Dreame X60 Ultra ryksugar og blautmoppar með 35.000 Pa sogkrafti og er 7,95 cm á hæð, svo hún kemst undir lág húsgögn. Vélin lyftir sér yfir allt að 8,8 cm tvöfalda þröskulda. Stöðin tæmir rykið, fyllir á vatn og þvær moppurnar með 100°C heitu vatni.

– 35.000 Pa sogkraftur
– Allt að 260 mín. á einni hleðslu
– Ryksugar og blautmoppar með tveimur snúningsmoppum
– Kemst yfir allt að 8,8 cm þröskulda
– 7,95 cm á hæð
– Sér hindranir með tveimur myndavélum
– Tvískiptur bursti sem hár flækist síður í
– Moppa og hliðarbursti sem ná inn í horn
– Lyftir moppunum eða skilur þær eftir á teppum
– Raddstýring með Alexa, Siri og Google Home
– Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni
– Vél 35 × 35 × 7,95 cm, stöð 39 × 42,3 × 49,9 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Oft keypt með

Moppur 4stk/pk - Dreame Matrix10 / X60 Ultra hitamoppur

  • Skúringarmoppur fyrir Dreame Matrix10 ryksuguvélmenni
  • 4stk í pakka (2 pör)
  • Heldur hita í lengri tíma en hefðbundnar moppur

Dreame X/L línunar - Moppur 4stk

  • Skúringarmoppur fyrir Dreame X/L línurnar
  • 4stk í pakka (2 pör)

Rykpokar 3stk/pk - Dreame X40 / X50 / L40 / L10s Ultra / o.fl

  • Ryksugupokar fyrir Dreame sjálftæmingarstöðvar
  • Passar fyrir:
    • Dreame Matrix10 Ultra
    • Dreame Aqua10 Ultra
    • Dreame X40 Ultra
    • Dreame X50 Ultra
    • Dreame X60 Ultra
    • Dreame L10s Ultra Gen 2
    • Dreame L10s Ultra Gen 3
    • Dreame L40 Ultra
    • Dreame L50 Ultra

Upplýsingar

35.000 Pa sogkraftur

Sogkrafturinn er 35.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 1
Allt að 260 mín. á einni hleðslu

6.400 mAh rafhlaða endist í allt að 260 mínútur þegar vélin ryksugar eingöngu á hljóðlátustu stillingu. Ef hleðslan klárast í miðjum þrifum fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið. Hraðhleðsla úr 9% í 80% tekur um 80 mínútur.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 2
Ryksugar og blautmoppar með tveimur snúningsmoppum

Tvær snúningsmoppur snúast allt að 230 hringi á mínútu, þrýstast niður í gólfið með allt að 15 N þrýstingi og nota 40°C heitt vatn til að leysa upp fasta bletti. Hægt er að láta vélina ryksuga, blautmoppa eða gera hvort tveggja í einu.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 3
Kemst yfir allt að 8,8 cm þröskulda

Vélin lyftir sér yfir einfalda þröskulda sem eru allt að 4,5 cm á hæð og tvöfalda þröskulda sem eru samtals allt að 8,8 cm, svo hún kemst sjálf á milli herbergja.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 4
7,95 cm á hæð

Skanninn ofan á vélinni fer niður þegar hún fer undir húsgögn. Þá er vélin 7,95 cm á hæð og kemst undir lága sófa, rúm og skápa. Með skannann uppi er hún 10,3 cm.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 5
Sér hindranir með tveimur myndavélum

Tvær myndavélar með gervigreind þekkja yfir 280 tegundir hluta á gólfinu, jafnvel hluti niður í 1 cm, svo vélin keyrir fram hjá þeim í stað þess að festast. Ljós á vélinni hjálpar henni að sjá í myrkri og skanni kortleggur heimilið.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 6
Tvískiptur bursti sem hár flækist síður í

Aðalburstinn er tvískiptur og hannaður þannig að hár flækist síður í honum. Það hentar vel á heimilum með gæludýr og þýðir að sjaldnar þarf að hreinsa burstann.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 7
Moppa og hliðarbursti sem ná inn í horn

Moppan og hliðarburstinn teygja sig út til að ná inn í horn og meðfram veggjum, þar sem kringlóttar vélar ná annars ekki til.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 8
Lyftir moppunum eða skilur þær eftir á teppum

Á þunnum teppum lyftir vélin moppunum um 1,05 cm. Fyrir þykk teppi skilur hún moppurnar eftir í stöðinni svo teppið blotni ekki.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 9
Raddstýring með Alexa, Siri og Google Home

Vélinni er stjórnað í Dreamehome-appinu, þar sem þú velur herbergi, stillir tímaáætlun og fylgist með þrifunum. Einnig er hægt að nota raddstýringu, annaðhvort beint við vélina („OK, Dreame“) eða með Alexa, Siri og Google Home.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 10
Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni

Stöðin tæmir rykið í 3,2 l rykpoka sem dugar í allt að 100 daga, fyllir á vatnið í vélinni og skammtar gólfsápu sjálf. Hún þvær moppurnar með 100°C heitu vatni og þurrkar þær með heitu lofti. Tankurinn fyrir hreint vatn er 4,2 l og tankurinn fyrir óhreint vatn 3 l.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 11
Vél 35 × 35 × 7,95 cm, stöð 39 × 42,3 × 49,9 cm

Vélin vegur 4,7 kg og stöðin 10,6 kg.

Dreame X60 Ultra – sölupunktur 12

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Dreame X60 Ultra ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra
  • Rykhólf
  • Ryksugupoki (3.2 L)
  • Hreinn vatnstankur (4.2 L)
  • Óhreinn vatnstankur
  • Moppupúðar
  • Hliðarbursti
  • Aðalbursti
  • Dreame X60 Ultra ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra
  • Rykhólf
  • Ryksugupoki (3.2 L)
  • Hreinn vatnstankur (4.2 L)
  • Óhreinn vatnstankur
  • Moppupúðar
  • Hliðarbursti
  • Aðalbursti

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur