(FORSALA) – Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

(FORSALA) – Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Upprunalegt verð var: 229.990 kr.
Núverandi verð er: 179.392 kr.
Þú sparar 50.598 kr.

Original price was: 229.990 kr..Current price is: 179.392 kr..

Frí heimsending um allt land
Þessi vara er í forsöluVæntanleg afhending er 10. desember 2026. Með því að panta núna tryggir þú þér eintak úr sendingunni.

Roborock Saros 20 ryksugar og blautmoppar í sömu ferð. Sogkrafturinn er 36.000 Pa, vélin kemst yfir tvöfalda þröskulda (4,5 + 4,3 cm) og er 7,98 cm á hæð. Stöðin tæmir rykið, þvær moppurnar með allt að 100°C heitu vatni og þurrkar þær.

– 36.000 Pa sogkraftur
– Allt að 180 mín. á einni hleðslu
– Ryksugar og moppar með snúningsmoppum
– Kemst yfir tvöfalda þröskulda, 4,5+4,3cm
– 7,98 cm á hæð
– Þekkir yfir 300 tegundir hindrana
– Burstar sem hár flækist ekki í
– Greinir bletti og velur aðferð
– Raddstýring, Alexa, Siri og Google Home
– Sveigir fram hjá gæludýrum
– Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni
– Vél 35,3 × 35 × 7,98 cm, stöð 38,1 × 47,5 × 48,8 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Forsala

Oft keypt með

Aukahlutapakki - Roborock Saros 20

  • Aukahlutapakki fyrir Saros 20 ryksuguvélmennið
    • ATH. ekki fyrir Saros 20 Sonic
  • Pakkinn inniheldur:
    • 3x rykpoka
    • 2x filter í rykhólf
    • 1x DuoDivide aðalbursta
    • 1x Hlíf yfir aðalbursta
    • 2x pör af moppum (4stk)

Hliðarbursti Arc - Roborock Z70 / Saros 20 línan / Saros 10 / Qrevo Edge 2 Pro / Edge / Curv / 5V1 / Qrevo S Pro / QR798 / Q10 VF / Q10 VF+ / Q7 TF / Q7 TF+ /

  • Arc hliðarbursti fyrir Roborock vélar

Uppselt

Filter í rykhólf (2stk/pk) - Roborock Saros 10R / Saros 20 / Edge 2 Pro / Curv 2 Pro

Moppur 4stk/pk - Roborock Saros 20

Aðalbursti tvískiptur DuoDivide - Roborock Saros 10 / 20 Sonic / Edge / Curv / Edge 2 Pro / Curv 2 Flow / 5V1

  • Aðalbursti fyrir Roborock QRevo Edge, Qrevo Curv og Saros 10 ryksuguvélmenni
  • DuoDivide tvískiptur aðalbursti
  • ATH: járnstykkið sem að festir burstann í vélina fylgir ekki með og því þarf að passa að halda því stykki eftir frá eldri burstunum
Vörunúmer: S2052-00-1

Upplýsingar

36.000 Pa sogkraftur

Sogkrafturinn er 36.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum. Vélin eykur sogið sjálf þegar hún fer upp á teppi.

Roborock Saros 20: 36.000 Pa sogkraftur
Allt að 180 mín. á einni hleðslu

6.400 mAh rafhlaða endist í allt að 180 mínútur í hljóðlátustu stillingu. Ef hleðslan klárast í miðjum þrifum fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið. Full hleðsla tekur um 2,5 klukkustundir.

Roborock Saros 20: vélin í hleðslu
Ryksugar og moppar með snúningsmoppum

Tvær moppur snúast 200 hringi á mínútu og þrýstast niður í gólfið. Önnur þeirra er á armi sem teygir sig út að veggjum og inn í horn. Á teppum skilur vélin moppurnar eftir í stöðinni svo teppin blotni ekki. Hægt er að láta vélina ryksuga, blautmoppa eða gera hvort tveggja í einu.

Kemst yfir tvöfalda þröskulda, 4,5+4,3cm

Vélin lyftir sér yfir tvöfaldan þröskuld sem er samtals allt að 8,8 cm: fyrri brúnin má vera allt að 4,5 cm og sú seinni 4,3 cm. Hún lyftir sér líka upp á teppi með allt að 3 cm háu flosi (stillt í appinu).

Roborock Saros 20: Kemst yfir tvöfalda þröskulda
7,98 cm á hæð

Enginn turn er ofan á vélinni, svo hún er 7,98 cm á hæð og kemst undir sófa, rúm og skápa sem eru með um 8 cm bil frá gólfi.

Roborock Saros 20: Aðeins 7,98 cm á hæð
Þekkir yfir 300 tegundir hindrana

Vélin kortleggur heimilið og þekkir yfir 300 tegundir hluta á gólfinu, niður í 2 cm að stærð, svo hún keyrir fram hjá þeim í stað þess að festast. Hún fer aftur yfir staði sem hún komst ekki að í fyrstu umferð.

Roborock Saros 20: sveigir fram hjá snúrum
Burstar sem hár flækist ekki í

Aðalburstinn er tvískiptur, svo hár renna út til hliðanna í stað þess að vefjast utan um hann. Hliðarburstinn teygir sig út til að sópa úr hornum og meðfram listum. Það hentar vel á heimilum með gæludýr eða síðhærðu fólki.

Roborock Saros 20: burstar sem hár flækist ekki í
Greinir bletti og velur aðferð

Myndavél greinir bletti á gólfinu og vélin bregst við: meiri sogkraftur á kattasand eða malað kaffi, en eingöngu blautmoppa ef vökvi hefur hellst niður. Kveikt er á þessu í appinu.

Roborock Saros 20: greinir bletti á gólfi
Raddstýring, Alexa, Siri og Google Home

Vélin er með innbyggða raddstýringu („Hello Rocky“) sem virkar án nettengingar. Einnig er hægt að nota Alexa, Siri og Google Home. Í Roborock-appinu velur þú herbergi, stillir tímaáætlun og fylgist með þrifunum.

Roborock Saros 20: Raddstýring og snjallheimili
Sveigir fram hjá gæludýrum

Vélin þekkir gæludýr, stöðvar aðalburstann og sveigir fram hjá þegar hún sér þau. Hún getur tekið myndir af dýrinu á meðan hún þrífur og í appinu er hægt að sjá það í beinni mynd.

Roborock Saros 20: Fyrir heimili með gæludýr
Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni

Stöðin tæmir rykið í rykpoka sem dugar í allt að 65 daga, fyllir á vatnið í vélinni og skammtar gólfsápu sjálf. Hún þvær moppurnar með allt að 100°C heitu vatni og þurrkar þær með 55°C heitu lofti svo þær lykti ekki. Botninn í stöðinni er laus, svo auðvelt er að skola hann.

Roborock Saros 20: sjálftæmingarstöð
Vél 35,3 × 35 × 7,98 cm, stöð 38,1 × 47,5 × 48,8 cm

Vélin vegur 5,05 kg og stöðin 10,54 kg.

Roborock Saros 20: Stærð og þyngd

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra
  • Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur