Ulefone Armor Pad 4 Ultra 256G 5G vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

Ulefone Armor Pad 4 Ultra 256G 5G vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

89.990 kr.

Orkumerking D

Ulefone Armor Pad 4 Ultra er öflug 5G vinnuspjaldtölva hönnuð fyrir erfiðar aðstæður, með innbyggðri hitamyndavél. Hún er með 10.36″ 2K skjá, öflugan Dimensity 6300 5G örgjörva og 8GB vinnsluminni. Geymsluplássið er 256GB og hægt er að setja allt að 2TB SD kort. Spjaldtölvan er IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottuð fyrir ryk, vatn og höggþol.

– 10.36″ 2K IPS LCD 60Hz skjár
– MediaTek Dimensity 6300 5G örgjörvi
– 8GB + 256GB minni
– 50MP + hitamyndavél
– 11.800mAh rafhlaða
– 5G, Wi-Fi 6, Bluetooth 5.2, Dual SIM
– IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottun
– Android 14 stýrikerfi
– Öflugt LED ljós og tvöfaldir hátalarar

Á lager

Oft keypt með

Ulefone Armor Pad 4 Ultra - Handfang og standur

  • Handfang og standur fyrir Ulefone Armor Pad spjaldtölvu
  • Festist á bakhlið tölvunnar
  • Hægt að snúa 360°
  • Passar fyrir Ulefone Armor Pad 4 Ultra

Ulefone uSmart E02 Dual Camera Endoscope

  • Röramyndavél með innbyggðum ljósum
  • Passar á Ulefone Armor 9/13/18T/18/19
  • Vatnsheld upp að 1,5m í 30mín
  • Kemur með segul og krók sem hægt er að festa á endann

Ulefone uSmart Endoscope E03 röramyndavél

  • E03 útgáfan af röramyndavél/borsjá frá Ulefone
  • Tengist við öll Ulefone tæki með uSmart tengi
  • Handfang heldur síma og stýrir rörinu 180° á tvo vegu, takki til að taka myndir á handfangi
  • 1 meter að lengd
  • Dimmanleg ljós umlykja myndavélina
  • 720p HD upplausn á myndavél
  • 6.5mm breidd á myndavél
  • IP67 vatns- og rykvörn
  • Taska til að geyma tækið fylgir með

Ulefone uSmart C01 Digital Microscope

  • Stafræn smásjá
  • Passar með öllum Ulefone símum með uSmart tengi
  • Þarf að nota uSmart Camera appið
    • Kemur uppsett á mörgum símum
    • Hægt að sækja APK útgáfu með því að smella hér
      • Sækja þarf APK útgáfuna beint í síma og fylgja uppsetningarleiðbeiningum.
Vörunúmer: 663250
Strikamerki: 6975326663250

Upplýsingar

10.36″ 2K IPS LCD 60Hz skjár

Spjaldtölvan er með stóran 10.36″ IPS LCD skjá með 1200 x 2000 pixla upplausn (2K) og 500 nits hámarksbirtustigi. Skjárinn er varinn með Corning Gorilla Glass 5 og hefur 60Hz endurnýjunartíðni, sem tryggir skýra og bjarta mynd í flestum aðstæðum.

MediaTek Dimensity 6300 5G örgjörvi

Ulefone Armor Pad 4 Ultra er knúin af áttakjarna MediaTek Dimensity 6300 5G örgjörva (6nm, allt að 2.4GHz) með Arm Mali-G57 MC2 GPU. Þessi örgjörvi skilar góðum afköstum fyrir daglega notkun, fjölverkavinnslu og 5G tengingu.

8GB + 256GB minni

Með 8GB LPDDR4X vinnsluminni er spjaldtölvan snögg að opna og skipta á milli forrita. Hægt er að stækka vinnsluminnið með allt að 8GB sýndarminni, samtals allt að 16GB. Geymsluplássið er 256GB UFS 2.2 og hægt er að stækka það með microSDXC korti allt að 2TB.

50MP + hitamyndavél

Aftan á spjaldtölvunni er 50MP aðalmyndavél (Samsung S5KGN1 sensor, f/1.9) sem tekur skýrar myndir. Einnig er innbyggð ThermoVue hitamyndavél með 160 x 120 pixla upplausn, 25Hz endurnýjunartíðni og mælingarsvið frá -10°C til 550°C. Að framan er 32MP selfie myndavél (Samsung S5KGD1 sensor, f/2.5).

11.800mAh rafhlaða

Spjaldtölvan er með stóra 11.800mAh Li-polymer rafhlöðu sem veitir langan endingartíma, allt að 64 klukkustundir í taltíma og 642 klukkustundir í biðstöðu. Hún styður 33W hraðhleðslu og 10W öfuga hleðslu með snúru, sem gerir þér kleift að hlaða önnur tæki.

5G, Wi-Fi 6, Bluetooth 5.2, Dual SIM

Spjaldtölvan styður 5G farsímanet, Wi-Fi 6 (802.11 a/b/g/n/ac/ax) og Bluetooth 5.2 fyrir hraðvirkar og stöðugar tengingar. Hægt er að nota tvö Nano-SIM kort í einu. Einnig er NFC og staðsetningartækni eins og GPS, GLONASS, Galileo og BeiDou.

IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottun

Ulefone Armor Pad 4 Ultra er með IP68/IP69K ryk- og vatnsvörn, ásamt MIL-STD-810H hernaðarstaðli fyrir höggþol. Þetta gerir spjaldtölvuna mjög endingargóða og hentuga fyrir notkun í erfiðu umhverfi. Hún þolir ryk, vatnsskvettur og fall. Gott er að kynna sér ábyrgðarskilmála varðandi högg- og vatnstjón. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.

Android 14 stýrikerfi

Spjaldtölvan keyrir á nýjasta Android 14 stýrikerfinu, sem býður upp á notendavænt viðmót, bætt öryggi og aðgang að fjölmörgum forritum í Google Play Store. Þú færð nýjustu eiginleika og uppfærslur frá Google.

Öflugt LED ljós og tvöfaldir hátalarar

Á bakhlið spjaldtölvunnar er öflugt 1.100 lúmena LED ljós með mörgum stillingum, sem nýtist vel sem vasaljós eða vinnuljós. Einnig er spjaldtölvan með tvöföldum hátölurum sem skila skýru hljóði.

Í kassanum fylgir:

  • Ulefone Armor Pad 4 Ultra
  • USB-C snúra
  • Hleðslukubbur
  • SIM-kort pinni
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Hlífðargler

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Ulefone Armor Pad 4 vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

Armor Pad 4 er harðgerð vinnuspjaldtölva sem er tilbúin í flestar aðstæður, spjaldtölvan þolir meira hnjask og hruðninga heldur en gengur og gerist en spjaldtölvan er smíðuð inní sterkan ramma. Hægt er að tengjast 5G farsímaneti með viðeigandi SIM korti svo hægt sé að nota hana hvar og hvenær sem er. Á spjaldtölvunni er hitamyndavél svo hægt er að skoða t.d raflagnir, pípulagnir, dýralíf og margt fleira. Þess utan er góð hefðbundin myndavél ef þarf t.d að taka myndir af vinnuverkefnum. Allt þetta er svo keyrt á öflugum örgjörva með Android 14 stýrikerfinu.

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

Háhraða tenging

Armor Pad 4 er með möguleika á 5G farsímanettengingu svo hægt sé að nota hana hvar og hvenær sem er.

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

ThermoVue hitamyndavél

Hitamyndavélin á spjaldtölvunni er með hárri upplausn og endurnýjunartíðni og sýnir mikla nákvæmni við hitamælingu á breiðum skala. Hægt er að mæla nokkra punkta samtímis og frá allt að -10°C hita og upp að 550°C í allt að kílómetersfjarlægð.

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél
Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

2K Gorilla Glass skjár

Skjárinn á spjaldtölvunni er með 2K hárri upplausn og skerpu, nær vel útí kantana og er varinn með Gorilla Glass gleri. 

50MP aðalmyndavél, 32MP selfie myndavél

Fyrir utan hitamyndavélina er Armor Pad 4 með flottri 50MP aðalmyndavél sem fangar mikil smáatriði og hentar vel þegar á t.d að taka myndir af verkstað. Spjaldtölvan er svo með 32MP selfie myndavél þannig þú getir litið út þínu besta á fjarfundum.

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

1100 lumens vasaljós

Á bakhliðinni er öflugt vasaljós sem getur lýst vel upp jafnvel í niðamyrkri.

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

Fleiri sniðugir eiginleikar

Ulefone Armor Pad 4 Ultra Thermal 256GB LTE vinnuspjaldtölva með hitamyndavél

Tengdar vörur